12.10.2010
Tískuverslanirnar Zara, Topshop og All Saints áfram í eigu Haga
Jóhannes Jónsson hefur fallið frá kaupum á tískuverslunum undir merkjum Zara, Topshop og All Saints sem nú eru reknar af Högum.
Í tilkynningu, sem Arion banki sendi frá sér 30. ágúst síðastliðinn, var greint frá samningi bankans við Jóhannes Jónsson, þar sem meðal annars kom fram að Jóhannes myndi kaupa þrjár sérvöruverslanir af Högum, Zara, Topshop og All Saints. Jóhannes Jónsson hefur nú ákveðið að nýta ekki umsaminn kauprétt og verða því verslanirnar þrjár áfram hluti af Högum.
Hluti af samkomulagi Arion banka og Jóhannesar nú er yfirlýsing Jóhannesar og tengdra aðila, sem tryggir rekstur tískuverslananna innan Haga til frambúðar þrátt fyrir persónuleg tengsl fjölskyldu Jóhannesar og eigenda viðkomandi umboða.
Önnur atriði samkomulagsins frá 29. ágúst standa, þar með talin kaup Jóhannesar á SMS í Færeyjum. Kaupverð er 450 milljónir króna sem er í samræmi við mat sérfræðinga bankans á virði hlutabréfanna. Lokauppgjör vegna kaupanna á SMS fer fram eigi síðar en 1. desember næstkomandi.
Hagar eru nú í söluferli hjá Arion banka og verður endanleg tilhögun þess og framkvæmd kynnt á næstu dögum.