04.06.2013

Tíu teymi valin til þátt­töku í Startup Reykja­vík 2013

Arion banki hefur fjárfest í tuttugu íslenskum sprotafyrirtækjum

Í mars síðastliðnum sóttu 207 teymi um þátttökurétt í Startup Reykjavík sem haldið verður í annað sinn í sumar. Er þetta nokkur aukning frá því í fyrra þegar 179 umsóknir bárust.

Tíu teymi hafa nú verið valin til þátttöku af þeim sem sóttu um. Munu þau taka þátt í tíu vikna viðskiptasmiðju þar sem þau fá tækifæri til að þróa sínar viðskiptahugmyndir með aðstoð fjölda mentora úr íslensku viðskiptalífi. Að baki Startup Reykjavík standa Arion banki og Klak-Innovit. Í gegnum Startup Reykjavík hefur Arion banki fjárfest samtals í tuttugu íslenskum sprotafyrirtækjum á þessu og síðasta ári.

Þau tíu teymi sem valin hafa verið og kynnt eru hér að neðan mun hvert um sig fá tvær milljónir króna í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlut í félaginu. Þau munu einnig fá fyrsta flokks vinnuaðstöðu og ráðgjöf frá fjölda sérfræðinga í þær tíu vikur sem Startup Reykjavík stendur yfir. Markmiðið er að þegar upp verður staðið þá hafi félögin tíu náð að þróa sínar viðskiptahugmyndir og gera sín félög betur í stakk búin að sækja sér fjármagn og koma sínum vörum á markað.

Startup Reykjavík lýkur þann 23. ágúst þegar öll teymin kynna sig fyrir fjárfestum.

Undanfarin ár hefur verið gróska í frumkvöðlastarfsemi hér á landi. Nýleg dæmi eru um íslensk sprotafyrirtæki sem hafa náð miklum árangri og ýmist sótt sér hlutafé á alþjóðlegum vettvangi eða selt reksturinn til erlendra fjárfesta. Markmiðið með Startup Reykjavík er að styðja við sprotafyrirtæki sem eru að taka sín fyrstu skref og hraða þróun þeirra meðal annars með aðstoð fjölmargra reyndra frumkvöðla og aðila úr íslensku viðskiptalífi.

Eftirfarandi félög hafa verið valin til þátttöku í Startup Reykjavík 2013:

Fyrirtæki

Stutt lýsing hugmyndar

SAReye

Þróun á samþættri leitartækni sem byggir annars vegar á loftmyndatöku og hins vegar úrvinnslu á myndum með myndgreiningartækni ásamt nánari greiningu á upplýsingum með hópgreiningartækni.

Activity Stream

Activity Stream hugbúnaðurinn auðveldar fyrirtækjum að veita framúrskarandi þjónustu með því að greina og miðla viðskiptaupplýsingum í rauntíma.

Snjóhús Software

Snjóhús hannar, þróar og selur hugbúnað fyrir snjallsíma og vinnur núna að þróun á einkaþjálfaraappi.

Herberia

Herberia brúar bilið á milli óskráðra náttúruvara og lyfja með því að framleiða og skrá hágæða jurtalyf fyrir Evrópumarkað.

Þoran Distillery

Þoran verkefnið snýst um að koma á laggirnar fyrstu viskí framleiðslunni á Íslandi og að búa til fyrsta flokks, einmalts viskí til útflutnings.

Silverberg

Silverberg hannar, þróar og selur mælingarbúnað fyrir líkamsræktarstöðvar og hugbúnað hvar notendur geta fylgst með árangri sínum.

Golf Pro Assistant

GolfPro Assistant er vefhugbúnaður fyrir golfkennara sem aðstoðar þá við alla þætti golfkennsluþjónustu og samskipti þeirra við nemendur.

Mindlantis

Á sama tíma og Mindlantis kennir börnum að veita hugmyndum sínum og snilligáfu athygli framleiðir fyrirtækið hágæða vörur sem byggja á hugmyndum barna.

Y-Z

Y-Z hyggst þróa nýja aðferð við að auka notagildi fatnaðar með tæknilegum útfærslum sem bæta framúrstefnulegum eiginleikum við klassíska hönnun.

Zalibuna

Hönnun og uppsetning eins manns sleðarennibrautar niður Kambana og ferðaþjónustu í kringum þessa afþreyingu.

Fyrirtækin voru öll kynnt á Startup Iceland ráðstefnunni í dag sem haldin er í Hörpu.

Vefsíða Startup Reykjavík er www.startupreykjavik.com.
Twitter: @startupRVK
Facebook: www.facebook.com/StartupReykjavik

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira