11.03.2014

Tón­list­ar­maðurinn Jón Jóns­son fræð­ir ungt fólk um fjármál

Jón Jónsson, tónlistarmaður og hagfræðingur, mun nú í mars og apríl ferðast um landið á vegum Arion banka til að fræða ungt fólk á skemmtilegan hátt um fjármál.

Þetta er í þriðja sinn sem Jón Jónsson tekur að sér fjármálafræðslu fyrir ungt fólk og hafa fyrirlestrar hans notið mikilla vinsælda. Fyrirlestrarnir eru unnir í samstarfi við Stofnun um fjármálalæsi en Arion banki er aðal styrktaraðili stofnunarinnar.

Fyrirlestrar Jóns Jónssonar verða með svipuðu sniði og undanfarin tvö ár. Hann mun, eins og honum einum er lagið, leitast við að svara fjölmörgum spurningum sem snúa að fjármálum og þá sérstaklega fjármálum ungs fólks. Meðal þess sem Jón Jónsson mun ræða í sínum fyrirlestrum:

  • Hvernig virka peningar

  • Markmiðasetning til skamms og langs tíma

  • Að velja og hafna (fórnarkostnaður)

  • Muninn á þörfum og óskum

Á síðasta ári var víðast hvar fullt út úr dyrum. Í ár mun Jón Jónsson koma við á fleiri stöðum á landinu en áður. Fyrsti fyrirlesturinn verður í Reykjavík þann 12. mars og fer fram í Arion banka, Borgartúni 19. Næstu fyrirlestrar verða svo í Hveragerði þann 17. mars og á Egilsstöðum þann 19. mars. Í kjölfarið verður Jón Jónsson með fyrirlestra á Hellu, Sauðárkróki, Akureyri, Borgarnesi og Hafnarfirði, en dagsetningar þeirra fyrirlestra verða auglýstar þegar nær dregur. Fyrirlestraröðin endar svo í Reykjavík hjá Arion banka, Borgartúni 19, þann 9. apríl.

Allar nánari upplýsingar er að finna hér á vef Arion banka og þar er hægt að skrá sig á fyrirlestra Jón Jónssonar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira