22.03.2011

Um 300 fyrir­tæki hafa feng­ið til­boð frá Arion banka í anda Beinu braut­ar­innar

Í kjölfar samkomulags sem undirritað var um miðjan desember síðastliðinn varðandi samræmdar aðgerðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja, kennt við Beinu brautina, hófst markviss vinna innan Arion banka við úrvinnslu þessara mála. Fyrirtæki í skuldavanda, sem skulda á milli 10 m.kr. til 1.000 m.kr., falla undir samkomulagið.

Það er mat sérfræðinga bankans að ríflega 450 viðskiptavinir Arion banka muni þurfa að fara í gegnum skuldaaðlögun í anda Beinu brautarinnar. Þegar hefur hafist vinna við úrlausn mála hjá rúmlega 400 fyrirtækjum og hafa tæplega 300 þeirra fengið tilboð frá bankanum. Stefnir Arion banki að því að gera öllum lífvænlegum fyrirtækjum, sem falla undir samkomulag Beinu brautarinnar, tilboð um endurskipulagningu fyrir 1. júní næstkomandi.

Mikilvægt er að ítreka að þeir viðskiptavinir bankans sem eru með erlend lán fyrirgera ekki betri rétti með því að samþykkja úrlausn á grundvelli Beinu brautarinnar.

Að samkomulaginu um Beinu brautina standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands.

Fjölmörg fyrirtæki sem ekki falla undir Beinu brautina hafa einnig farið í gegnum úrlausnarferli hjá Arion banka. Þannig hafa um 440 fyrirtæki til viðbótar hafið úrlausnarferlið og því eru það alls um 840 fyrirtæki sem hafa hafið úrlausnarferli hjá bankanum. Af þeim fjölda er komin niðurstaða í mál um 640 fyrirtækja.

Arion banki hvetur fyrirtæki í skuldavanda til þess að hafa samband við fyrirtækjaráðgjafa í næsta útibúi til að leita lausna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira