30.01.2009

Umboðs­maður viðskipta­vina Nýja Kaupþings

Brynhildur Georgsdóttir hefur verið ráðin umboðsmaður viðskiptavina hjá Nýja Kaupþingi. Brynhildur lauk lögfræðinámi við Háskóla Íslands árið 1994 og MBA námi við sama skóla árið 2008. Brynhildur hefur víðtæka reynslu, var fulltrúi sýslumanns í Vestmannaeyjum 1994 - 1997, gæðastjóri Umferðastofu 1997 - 2000 og framkvæmdastjóri ökutækjasviðs Umferðastofu til 2006. Frá árinu 2008 hefur hún starfað hjá Mosfellsbæ, fyrst sem framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs og í framhaldinu sem verkefnastjóri eignasjóðs.

Umboðsmaður viðskiptavina Nýja Kaupþings starfar í umboði stjórnar og fylgist með að meðhöndlun mála sé í samræmi við skýrar verklagreglur og að sanngirni sé gætt við úrlausn þeirra. Umboðsmaður yfirfer verklagsreglur og vinnuferla bankans í þeim tilgangi að byggja upp traust á starfsemi hans. Umboðsmaður mun meðal annars yfirfara úrlausn útlánavandamála fyrirtækja og tryggja að viðskiptavinum sé ekki mismunað, afgreiðsla sé gegnsæ og gætt sé að samkeppnissjónarmiðum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira