31.05.2011
Umfangsmikið samstarf Arion banka og Háskólans á Bifröst
46 starfsmenn í sérhæfðu námi brautskráðir
Nú um mánaðamótin brautskráðust 46 starfsmenn Arion banka, sem starfa í útibúum bankans vítt og breitt um landið, úr sérhæfðu undirbúningsnámi í fjármálaráðgjöf frá Háskólanum á Bifröst. Námið er liður í samstarfsverkefni Arion banka og háskólans sem hófst haustið 2010. Samstarfið er ekki síst merkilegt fyrir þær sakir að akademískum fræðum háskólans er fléttað saman við þekkingar- og reynsluheim bankans þannig að úr verður lifandi heildarpakki. Í ljósi góðrar reynslu má gera ráð fyrir að meira kveði að slíku samstarfi í framtíðinni.
Fræðslustarf Arion banka hefur undanfarin ár verið víðtækt. Námið sem nú var að ljúka er afrakstur þarfagreiningar meðal starfsmanna og upp úr þeirri vinnu varð til samstarf við Háskólann á Bifröst sem þróaði tillögurnar áfram í samvinnu við bankann. Það hefur verið mikill akkur fyrir bankann að vinna að námsleiðum í samvinnu við öflugan háskóla. Námið stunduðu starfsmenn að hluta til í gegnum fjarnámsvef skólans en einnig fór kennsla fram í vinnulotum á Bifröst og í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni. Fyrr á árinu luku 300 starfsmenn bankans umfangsmiklu námi um vörur og kerfi sem alfarið fór fram í fjarnámi.
„Það er óhætt að segja að mikill metnaður hafi verið lagður í verkefnið af hálfu bankans sem og Háskólans á Bifröst, en verkefnið er það umfangsmesta sem skólinn hefur tekið að sér fyrir fyrirtæki í atvinnulífinu. Arion banki hefur unnið mikið brautryðjendastarf fyrir fyrirtæki á fjármálamarkaði og haft hugrekki til að fara nýjar leiðir við að koma námi á framfæri til starfsfólks, með blöndu af fjarnámi og vinnulotum á Bifröst.“ sagði Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst við útskriftarathöfnina.
Námið er hluti af menntunarátaki sem efnt var til í kjölfar stefnumótunar bankans þar sem áhersla er lögð á getu starfsmanna til að veita fyrirtækjum og einstaklingum fjölbreytta fjármálaþjónustu með persónulegri þjónustu og sérsniðnum lausnum. Megináhersla er lögð á einstaklingsráðgjöf, fyrirtækjaráðgjöf, laga- og regluverk í bankastarfsemi, ráðgjafafærni og fleiri hagnýta þætti sem stuðla að aukinni fagmennsku í þjónustu við viðskiptavini. Námið er sett upp sem fyrsti áfangi í fjármálaráðgjafarnámi fyrir starfsmenn Arion banka og er stefnt að öflugu framhaldi á næstu misserum.
Útskriftarhópurinn ásamt Bryndísi Hlöðversdóttur, rektor Háskólans á Bifröst, Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka og Dröfn Guðmundsdóttur fræðslustjóra Arion banka.