25.08.2011
Umsögn Arion banka um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða
Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn Arion banka um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 827. mál, í júní síðastliðnum.
Meðfylgjandi er sú umsögn sem bankinn sendi til Alþingis 23. ágúst. Í umsögninni er einblínt á þau atriði er telja má helst að snerti bankann með beinum hætti en Greiningardeild bankans mun á næstunni birta umfjöllun um þjóðhagsleg áhrif frumvarpsins.