24.04.2012
Umsögn Arion banka um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og frumvarp til laga um veiðigjöld
Atvinnuveganefnd Alþingis óskaði eftir umsögn Arion banka um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða , 657. mál, og frumvarp til laga um veiðigjöld, 658. mál, í mars síðastliðnum.
Meðfylgjandi er sú umsögn sem bankinn sendi til Alþingis 23. apríl. Í umsögninni eru gerðar athugasemdir við hvort frumvarp um sig auk þess sem varpað er ljósi á ætluð áhrif frumvarpanna á rekstur bankans.
Umsögn um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og frumvarp til laga um veiðigjald