05.11.2014

Um­sókn­ar­frest­ur í Startup Energy Reykja­vík er 11. nóv­em­ber

Startup Energy Reykjavík (SER) er viðskiptahraðall þar sem ung fyrirtæki í orkutengum iðnaði og þjónustu fá víðtækan stuðning við frekari mótun sinna viðskiptahugmynda.

Startup Engergy Reykjavík fer fram á tímabilinu janúar – mars 2015 en bakhjarlar fjárfesta í allt að 7 fyrirtækjum fyrir 5 milljónir króna í hverju og einu auk þess sem 50 manna hópur úr vísinda, viðskipta- og athafnalífinu munu leiðbeina teymunum jafnt og þétt á meðan á SER stendur. Teymin munu hafa aðstöðu í Háskólanum í Reykjavík.

Skipulag SER er byggt á góðri reynslu frá Startup Reykjavík sem hefur verið haldið árin 2012-2014 en í gegnum það verkefni hefur Arion banki nú þegar fjárfest í 30 íslenskum sprotafyrirtækjum. Reynslan hefur sýnt að fyrirkomulagið hentar vel til þess að efla og undirbúa fyrirtæki sem eru að taka sín fyrstu skref í mótun og framkvæmd viðskiptahugmynda.

Hverjir eiga að sækja um?

Frumkvöðlar og verkefni sem telja að þau hafi upp á að bjóða vörur tengdum orkuiðnaðinum. Dæmi um starfsemi sem eiga gott erindi í Startup Energy Reykjavík er ýmis konar sérfræðiþjónusta, vélar, búnaður, viðhaldsþjónusta og hugbúnaður. Fyrirtæki á öllum stigum virðiskeðjunnar (framleiðsla, orkubreyting, dreifing, smásala) eiga erindi í SER.

Eftir hverju er leitað?

Varan eða þjónustan skal eiga erindi á alþjóðamarkað með skýran markhóp. Æskilegt er að verkefnið sé vel skalanlegt með tilliti til tekna. Eingöngu er horft á lausnir fyrir orkugeirann og tengdar eða afleiddar greinar.

Hvernig eru verkefnin valin?

Horft verður á hversu markaðsvæn varan eða þjónustan er og metið hvaða erindi hún á fyrir hinn skilgreinda markhóp. Samsetning teymisins á bak við hugmyndina er einnig mikilvæg, þ.e. að nægileg breidd sé í hópnum til þess að hugmyndin geti orðið að veruleika.
Bakhjarlar SER eru Arion banki, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og GEORG. Framkvæmd og utanumhald er í höndum Klak Innovit og Iceland Geothermal.

Vefsíða Startup Energy Reykjavík

Skoðaðu kynningarmyndband Startup Energy Reykjavík:

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira