15.12.2010
Umtalsverður árangur Arion banka í úrlausnarmálum fyrirtækja
Víðtækt samkomulag hefur náðst um samræmdar aðgerðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands. Skrifað var undir samkomulagið síðdegis í dag í Rúgbrauðsgerðinni.
Að mati þeirra sem undir samkomulagið rita, er það ein af nauðsynlegum forsendum nýrrar fjárfestingar í íslensku hagkerfi sem aftur leiðir af sér hagvöxt og störf.
Samkomulagið felur í sér að endurskipulagningu skulda lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði hraðað verulega og að samræmdri aðferðafræði verði beitt við endurskipulagninguna. Stefnt er að því að fyrir 1. júní næstkomandi hafi fjármálafyrirtæki lokið skoðun á fjárhagsstöðu þessara fyrirtækja og gert lífvænlegum fyrirtækjum, sem eru í fjárhagsvanda, tilboð um endurskipulagningu skulda þeirra.
Sú leið sem lýst er í samkomulaginu er sú aðferðarfræði sem Arion banki hefur notað um nokkurt skeið. Í byrjun lagði bankinn höfuðáherslu á stærri fyrirtæki landsins (með útlán yfir 100 milljónir) en nú færist áherslan yfir á lítil og meðalstór fyrirtæki. Það hafa um 450 fyrirtæki þegar hafið úrlausnarferli hjá Arion banka og þar af er komin niðurstaða í um 320 mál. Arion banki telur að allt að 400 fyrirtæki til viðbótar, sem skulda á milli 10 m.kr. til 100 m.kr., þurfi að fara í gegnum slíka skuldaaðlögun. Arion banki hóf vinnu við þennan hóp fyrirtækja nú á haustmánuðum og stefnir að því að gera þeim öllum tilboð um endurskipulagningu fyrir 1. júní næstkomandi.
Arion banki hvetur fyrirtæki í skuldavanda til þess að hafa samband við fyrirtækjaráðgjafa í næsta útibúi til að leita lausna.
Nánar um samkomulag um úrvinnslu skuldamála litilla og meðalstórra fyrirtækja.