20.12.2012
Undanþága frá uppgreiðsluákvæðum rennur út um áramótin
Arion banki hefur frá fyrsta júlí 2009 veitt viðskiptavinum undanþágu frá uppgreiðslu- og umframgreiðslugjöldum þeirra íbúðarlána sem tekin voru fyrir þann tíma. Var þetta gert til að koma til móts við þá viðskiptavini sem vildu greiða niður húsnæðiskuldir sínar.
Undanþágan mun renna út nú um áramótin og taka þá aftur gildi ákvæði lánasamninganna sem kveða á um uppgreiðslu- og umframgreiðslugjöld.