25.10.2012

Undir­búningur að endurút­reikningi haf­inn

Arion banki hefur lokið fyrsta áfanga við skoðun á dómi Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka. Dómurinn skýrir að mörgu leyti þá óvissu sem verið hefur varðandi endurútreikning gengistryggðra lána eftir dóm Hæstaréttar frá 15. febrúar sl.

Grunnniðurstaða okkar nú er að dómurinn eigi við um gengistryggð lán þar sem lántakinn var í skilum með lánið samkvæmt upphaflegum skilmálum þess. Við teljum einnig að dómurinn gildi að meginstefnu bæði um einstaklinga og fyrirtæki. Þannig er ljóst að við þurfum að endurskoða endurútreikning gengistryggðra lána, að minnsta kosti yfir það tímabil sem þau voru í skilum samkvæmt upphaflegum lánaskilmálum.

Varðandi framkvæmd endurútreikningsins þá liggur aðeins fyrir á þessum tímapunkti hvernig haga skuli endurútreikningi varðandi þann hóp lántaka sem stóð í skilum allan tímann samkvæmt upphaflegum lánaskilmálum. Undirbúningur við endurútreikning þeirra lána er hafinn.

Við vinnum nú að því að skýra með hvaða hætti rétt er að nálgast endurútreikninginn í öðrum tilfellum, svo sem þegar lántakinn fékk frystingu eða greiddi ákveðna upphæð af hverri milljón. Þetta mun allt taka tíma og getum við á þessum tímapunkti ekki sagt til um hvenær niðurstaða þess mun liggja fyrir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira