16.05.2013
Uppfærsla í netbanka um hvítasunnuhelgina 17. - 20. maí
Vegna uppfærslu í Netbanka Arion banka um hvítasunnuhelgina verður ekki hægt að framkvæma eftirfarandi aðgerðir:
Millifæra af eða á höfuðbók 22 og 36
Stofna til viðskipta með sjóði
Stofna reikninga
Uppfærslan hefur ekki áhrif á aðra þjónustuþætti netbankans. Þannig halda algengir veltureikningar, eins og þeir með höfuðbók 26, fullri virkni. Á þriðjudagsmorgun, þann 21. maí kl. 9:00, verður uppfærslu lokið og netbankinn aftur kominn með fulla virkni.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Vinsamlegast sendu okkur póst á uppfaersla@arionbanki.is ef þú þarfnast frekari upplýsinga eða aðstoðar vegna þessa.
Kær kveðja,
Starfsfólk Arion banka