21.08.2014

Upplifðu Ís­land upp á nýtt á Menningarnótt

Arion banki býður gestum Menningarnætur í EXPO skálann í Hörpu þar sem sýnd verður einstök 15 mínútna löng 360 gráðu kvikmynd þar sem veggir og loft mynda sjónræna heild. Myndin var framleidd af Saga film með nýrri tækni. Myndskeiðum frá náttúru og borg er varpað á fjórar hliðar og loft skálans og sýna Ísland í öllum sínum fjölbreytileika. Upplifun sem lætur engan ósnortinn.

Expo skálinn sló í gegn á heimssýningunni í Shanghai og bókamessunni í Frankfurt og hefur verið settur upp í Hörpu. Arion banki býður gestum Menningarnætur að heimsækja hann milli kl. 11 og 18. Myndin er sýnd á hálftíma fresti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira