02.12.2013

Upplýsinga­öryggi – gagnastuld­ur hjá Voda­fo­ne

Vegna gagnastuldar hjá Vodafone viljum við koma því á framfæri að ekkert bendir til þess að gagnastuldurinn hafi áhrif á öryggi netbankaviðskipta hjá Arion banka. Í Netbanka Arion banka er byggt á tvíþátta öryggislausn. Annars vegar er um að ræða notandanafn og lykilorð og hins vegar auðkennislykil eða sms og ekki er hægt að skrá sig inn á netbankann nema þetta þrennt (notendanafn, lykilorð og auðkenni) sé til staðar.

Við viljum þó ítreka mikilvægi þess að senda ekki viðkvæmar upplýsingar eins og notendanafn, lykilorð og kreditkortaupplýsingar með sms-i eða í tölvupósti. Einnig hvetjum við þig til að skipta reglulega um lykilorð og nota ekki sama notendanafn og lykilorð á mörgum stöðum á netinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira