05.10.2010
Úrlausnarmál einstaklinga og fyrirtækja eru forgangsmál innan bankans
Í ljósi ummæla forsætisráðherra í gærkvöldi vill Arion banki koma eftirfarandi á framfæri:
Umtalsverður árangur hefur náðst innan bankans í úrlausnarmálum einstaklinga og fyrirtækja. Vissulega væri óskandi að árangurinn væri enn meiri en hér eru á ferðinni flókin og tímafrek úrlausnarefni þar sem vanda þarf til verka.
Úrlausnarmál einstaklinga og fyrirtækja eru forgangsmál innan bankans.
Einstaklingar
Um 3.000 einstaklingar hafa nýtt sér þær lausnir sem bankinn hefur boðið upp á varðandi íbúðalán, þar af hefur bankinn samþykkt 150 sértækar skuldaaðlaganir.
Hafa verður í huga að mikið dró úr afgreiðslu mála í sumar vegna óvissu tengdri gengisdómum og nú er beðið eftir boðuðu frumvarpi ráðherra.
Ákveðið var í október 2009 að Arion banki myndi ekki fara fram á nauðungarsölur fasteigna einstaklinga út árið 2010.
Fyrirtæki
Í úrlausnarmálum fyrirtækja hefur Arion banki lagt áherslu á stærri fyrirtæki og er búið að ná samkomulagi við um tvo þriðju hluta stærri fyrirtækja sem eiga við skuldavanda að glíma.
Þar sem vinna með stærri fyrirtækjum er vel á veg komin færist áherslan nú yfir á smærri fyrirtæki og lausnir fyrir þau.