21.12.2009
Útibú bankans á Akureyri styrkir Mæðrastyrksnefnd í bænum
Mæðrastyrksnefnd tók á dögunum við styrk að upphæð 200.000 kr. frá útibúi bankans á Akureyri. Þetta var gert í stað þess að senda viðskiptavinum glaðning.
Útibúið tók þessa ákvörðun í ljósi þess hve þröngt er í búi hjá mörgum fjölskyldum á Akureyri, ekki síður en annars staðar á landinu. Starfsfólk útibússins færði nefndinni enn fremur matvæli í síðustu viku.