08.09.2014

Vara­sam­ur tölvu­póst­ur

Svo virðist sem tölvuþrjótar hafi í dag sent út tölvupóst í nafni íslenskra banka, þar á meðal í nafni Arion banka. Í póstinum er tengill inn á sýndarvefsíðu sem sögð er vera Netbanki Arion banka þar sem viðtakendur eru hvattir til að skrá sig inn.

Pósturinn er ekki frá Arion banka heldur frá tölvuþrjótum sem vilja með þessu reyna að komast yfir innskráningarupplýsingar viðskiptavina okkar.

Mikilvægt er að smella ekki á tengilinn í póstinum. Hafi það hins vegar verið gert er nauðsynlegt að skrá sig strax inn í Netbanka Arion banka í gegnum https://netbanki.arionbanki.is og breyta lykilorði undir Stillingar > Almennt > Breyta lykilorði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira