03.09.2014

Vegg­mynd Sig­ur­jóns Ólafs­son­ar til sýnis í höfuð­stöðv­um bankans, Borgar­túni 19

Árið 1948 flutti Búnaðarbankinn í eigið húsnæði í Austurstræti 5. Af því tilefni voru tveir listamenn fengnir til að gera verk til að prýða afgreiðslusal hússins. Annars vegar var þetta málverkið Vorgleði eftir Jón Engilberts og hins vegar veggmynd Sigurjóns Ólafssonar úr koparvír af húsdýrum og íslensku sveitafólki við heyskap. Segja má að þessi tvö verk séu fyrsti vísir að listasafni Búnaðarbankans sem í dag er hluti af listasafni Arion banka. Verk Sigurjóns hefur verið í Austurstræti 5 í nærri sjö áratugi en var sett upp í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni fyrr í sumar þar sem það verður næstu mánuði.

Sigurjón fæddist á Eyrarbakka árið 1908. Hann var í hópi brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi og var alla ævi í fararbroddi íslenskrar höggmyndalistar. Grunninn að listsköpun sinni lagði hann í Danmörku á fjórða og fimmta áratug liðinnar aldar og tók þar mótandi og virkan þátt í danskri framúrstefnulist. Standmyndir og veggskreytingar eftir hann má víða sjá í Reykjavík auk þess sem hann gerði um tvö hundruð mannamyndir af ýmsum þekktum Íslendingum. Margir kannast við verkið hans Öndvegissúlur sem stendur við Höfða sem og Íslandsmerki við Hagatorg. Sigurjón lést árið 1982.
Nú stendur yfir yfirlitssýning á verkum Sigurjóns í Listasafni Íslands og Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga, en það safn varð deild innan Listasafns Íslands árið 2012. Sýningarnar standa út október.

Við hvetjum alla til að koma við í höfuðstöðvum bankans og skoða verk Sigurjóns, auk þess sem stutt er í Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira