08.09.2009

Veg­leg gjöf frá starfs­fólki Nýja Kaupþings

Formaður starfsmannafélags Nýja Kaupþings afhenti í dag forsvarsmönnum átaksins á Allra vörum tæplega ellefu hundruð þúsund krónur að gjöf frá starfsfólki bankans. Gríðarlega góð þátttaka var í átakinu en tæplega helmingur starfsmanna lagði málefninu lið. Bankinn greiddi helmings framlag á móti starfsfólki. Að þessu sinni var safnað fyrir hvíldarheimili fyrir krabbameinssjúk börn. Þetta er stærsta einstaka gjöf frá starfsfólki fyrirtækis til átaksins Á allra vörum í ár.

Gróa Ásgeirsdóttir forsvarskona átaksins Á allra vörum:

,,Við erum virkilega ánægð með að starfsfólk Nýja Kaupþings hafi tekið svona vel við sér. Gjöfin er í anda dagsins þar sem meira er um einstaklingsframlög en nokkru sinni áður. Ég vil fyrir hönd krabbameinssjúkra barna þakka starfsfólki innilega fyrir framlagið."

Svava Halldóra Friðgeirsdóttir formaður starfsmannafélags Nýja Kaupþings:

,,Það er sérlega ánægjulegt að leggja svo góðu málefni lið. Starfsfólk Nýja Kaupþings vill leggja sitt af mörkum við uppbyggingu hvíldarheimilis fyrir krabbameinssjúk börn og við vonum að hún gangi sem allra best."

Frá afhendingu gjafarinnar. Frá vinstri, Guðrún Elín Ingvarsdóttir varaformaður starfsmannafélags Nýja Kaupþings, Svava Halldóra Friðgeirsdóttir formaður starfsmannafélags Nýja Kaupþings, Gróa Ásgeirsdóttir, Guðný Pálsdóttir og Elísabet Sveinsdóttir forsvarskonur átaksins Á allra vörum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira