19.10.2012

Vegna dóms Hæsta­rétt­ar

Dómur Hæstaréttar frá því í gær virðist staðfesta megin niðurstöðu dóms réttarins frá 15. febrúar síðastliðnum um gildi fullnaðarkvittana.

Í þessu tiltekna máli endurreiknaði Arion banki gengistryggt lán sveitarfélags í samræmi við ákvæði laga nr. 151/2010. Þau lög voru sett af Alþingi í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 16. september 2010 um vexti sem gengistryggð lán ættu að bera. Samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær standast þau ákvæði laganna, sem lúta að ákvörðun vaxta aftur í tímann, ekki eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.

Dómurinn skýrir einhver þeirra álitaefna sem komu upp í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar sl. Mörg álitaefni eru þó enn til staðar. Um leið og fyrir liggur hvaða lán falla undir fordæmi dóma Hæstaréttar um fullnaðarkvittanir og hvernig skuli standa að endurútreikningi, þannig að hann standist lög og stjórnarskrá, verður hafist handa við endurútreikning. Arion banki vinnur að því að svo verði sem fyrst, en líklegt er að bera þurfi nokkur álitamál undir dómstóla áður en endurútreikningur getur hafist.

Varðandi áhrif dómsins frá því í gær á lánasafn Arion banka og almennt fjárhagsstöðu bankans er rétt að taka fram að í ársreikningi Arion banka fyrir árið 2011 var að fullu tekið tillit til áhrifa dóms Hæstaréttar frá 15.febrúar sl. á lánasafn bankans með 13,8 milljarða króna niðurfærslu lánasafnsins. Dómur Hæstaréttar í gær breytir því engu þar um. Ekki mun þó liggja fyrir hver endanleg niðurfærsla lána verður í kjölfar þessara dóma, en það mun ekki liggja fyrir fyrr en að loknum endurútreikningi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira