18.11.2010

Vegna frétt­ar á vef Viðskipta­blaðsins um sam­komulag bankans við Þor­stein M. Jóns­son

Vegna fréttar á vef Viðskiptablaðsins um samkomulag bankans við Þorstein M. Jónsson vill Arion banki koma eftirfarandi á framfæri:

Frétt Viðskiptablaðsins er röng. Ekki var haft samband við fulltrúa Arion banka vegna vinnslu fréttarinnar.

Bankinn hefur um nokkurt skeið unnið að samkomulagi við Þorstein M. Jónsson vegna skulda hans og félaga honum tengdum við bankann. Samkomulagið er á lokastigum en ekki er tímabært að greina frá efnisatriðum þess að svo stöddu.

Arion banki mun senda frá sér tilkynningu þar sem fram koma öll helstu efnisatriði samkomulagsins eins fljótt og unnt er.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira