10.11.2011

Vegna um­fjöll­un­ar um fyrir­tæki í eigu bankanna

Komið hefur fram í fjölmiðlum að samkvæmt upplýsingum FME hafi bankarnir í sinni eigu 137 félög sem eru í óskyldri starfsemi.

Í ljósi umræðunnar er rétt að upplýsa að af þessum 137 félögum tilheyra 37 félög Arion banka. Þar af eru 25 eignarhaldsfélög sem bankinn hefur leyst til sín sem hluta af úrlausnarferli. Þessi félög eru ekki í samkeppnisrekstri og langflest þeirra eru á leið í þrot eða slitameðferð.

Af þeim rekstrarfélögum sem eru í samkeppnisrekstri er Arion banki aðeins með ráðandi hlut í sex félögum. Þar af hafa tvö félög þegar verið seld og salan bíður samþykkis Samkeppniseftirlitsins. Um er að ræða N1 og BM Vallá. Hvað varðar hin félögin fjögur þá er unnið að skráningu Haga í Kauphöll og stefnir bankinn á að ljúka sölu þeirra þriggja sem eftir standa, Pennans, FramFood og Sigurplasts, á fyrri helmingi ársins 2012.

Til viðbótar er bankinn minnihlutaeigandi í um sex rekstrarfélögum en þar er bankinn yfirleitt háður meirihluta eigendum félagsins um sölu á eignarhlut sínum.

Því má ljóst vera að af þessum 137 félögum þá mun Arion banki, eftir skráningu Haga í Kauphöll, aðeins vera með ráðandi hlut í tveimur rekstrarfélögum sem eru í samkeppni á innanlandsmarkaði, Pennanum og Sigurplasti.

Við þetta er rétt að bæta að eftir úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá því í gær þá mun bankinn þurfa að taka aftur yfir rekstur svínabúanna að Brautarholti og Hýrumel í Borgarfirði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira