03.04.2012

Vel heppn­aðir fræðslufundir með Jóni Jóns­syni - Mynd­band

Tónlistarmaðurinn og hagfræðingurinn Jón Jónsson hefur undanfarna daga komið fram fyrir hönd bankans og frætt fermingarbörn og önnur ungmenni um fjármál. Nú er tíð ferminga genginn í garð og þá er gott að huga að sparnaði, enda mörg börn sem fá pening í fermingargjöf. Fyrirlestrar Jóns voru afar vel sóttir, annar í Borgartúni 19 en hinn á Hótel KEA á Akureyri, og spunnust líflegar umræður í kjölfar þeirra.

Jón, sem notið hefur mikilla vinsælda fyrir tónlistarhæfileika sína, er menntaður hagfræðingur frá Boston University og gat því útskýrt ýmis flókin mál tengd fjármálum á einfaldan og skemmtilegan máta fyrir unglingunum. Í lok fundanna tók hann svo lagið með gítarinn að vopni og vakti mikla lukku.

Hér má sjá skemmtilegt myndband frá kynningunni sem haldin var í Reykjavík.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira