13.04.2015

Vel heppn­aðir Kaup­hall­ar­dag­ar

Kauphallardagar Arion banka fóru fram 8. og 9. apríl en þetta var í fimmta sinn sem dagarnir voru haldnir. Stjórnendur skráðra félaga, ásamt félögum sem hyggja á skráningu, kynntu félögin og svöruðu spurningum úr sal. Kauphallardagarnir voru opnir öllum en var sérstaklega beint að fjárfestum. Samtals var boðið upp á 14 kynningar auk þess sem Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fór stuttlega yfir stöðu og afkomu Arion banka við setningu daganna.

Kauphallardagar hafa markað sér sess sem vettvangur fyrir stjórnendur fyrirtækja til að kynna rekstur félaga sinna enn betur eða með öðrum hætti en gert er á hefðbundnum afkomukynningum.

Í ár voru dagarnir sérstakir að því leyti að skráðum félögum fjölgaði um eitt á meðan á dögunum stóð en viðskipti með Reiti fasteignafélag hófust á fimmtudagsmorgun. Jafnframt var ýtt úr vör kynningum á Eik fasteignafélagi sem stefnir á skráningu undir lok þessa mánaðar í framhaldi af hlutafjárútboði. Forstjórar beggja þessara félaga voru meðal fyrirlesara á Kauphallardögum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira