29.05.2009
Vel heppnaður fræðslufundur um lífeyrissparnað
Fræðslufundur Eignastýringar Kaupþings um lífeyrissparnað sem haldinn var fimmtudaginn 28. maí var vel sóttur.
Arnaldur Loftsson framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins bauð gesti velkomna og því næst fjallaði Marinó Örn Tryggvason, forstöðumaður á Eignastýringarsviði Kaupþings, um helstu þætti lífeyrissparnaðar og lauk umfjölluninni á 60 mínútum eins og lagt var upp með. Marinó fjallaði m.a. um mismunandi lífeyrissjóði, fjárfestingarstefnur og mikilvægi þess að sjóðfélagar hugi að eigin lífeyrissparnaði.
Fundargestir báru fram fjölda spurninga meðan á framsögu stóð. Almenn ánægja var með fundinn á meðal fundargesta.