20.05.2010
Vel heppnaður fundur um orkumál í Arion banka
Arion banki bauð upp á morgunfund um framtíð orkugeirans á Íslandi. Yfirskrift fundarins var „Er lagning sæstrengs frá Íslandi til Evrópu vænlegur kostur? Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar bankans fjallaði um vaxtamöguleika í orkugeiranum, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar fjallaði um breytingar á raforkumarkaði á Íslandi með og án lagningu sæstrengs og þeir Alf Persson og Andreas Borsos frá ABB Svíþjóð töluðu um tæknileg atriði varaðandi lagningu sæstrengs.
Að loknum erindum voru pallborðumræður með þátttöku fyrirlesaranna auk Vilhjálms Þorsteinssonar, stjórnarformanns Verne holdings og Sigurðar Arnalds, stjórnarformanns Mannvits. Mjög góð mæting var á fundinn og er greinilegt að orkumál eru Íslendingum ofarlega í huga.