14.10.2011

Vel heppn­aður fund­ur um stöðu og fram­tíð ís­lensks sjáv­ar­út­vegs

Greiningardeild Arion banka stóð fyrir morgunfundi í síðustu viku um stöðu og framtíð íslensks sjávarútvegs. Fundurinn var mjög vel sóttur og greinilegt að mikill áhugi er á mögulegum áhrifum nýrrar fiskveiðilöggjafar á þróun íslensks sjávarútvegs.

Fyrirlesarar fundarins voru: Kristrún Mjöll Frostadóttir, sérfræðingur í Greiningardeild Arion banka, Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis og Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda.

Hægt er að horfa á eftirtalda fyrirlestra hér á vefnum:

  • Þróun undirstöðuatvinnugreinar Íslands og möguleg áhrif nýrrar fiskveiðilöggjafar
    Kristrún Mjöll Frostadóttir, sérfræðingur í greiningardeild Arion banka

  • Frumvarp um stjórn fiskveiða og tillögur að breytingum
    Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis

  • Arðurinn til þjóðarinnar
    Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda

Íslenskur sjavarútvegur - skýrsla Greiningardeildar Arion banka.pdf

Á meðfylgjandi myndum má sjá fyrirlesarana, auk Höskuldar H. Ólafssonar, bankastjóra Arion banka og Bjarkar Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira