07.06.2012
Vel sótt ráðstefna um olíu á Drekasvæðinu
Arion banki hélt í morgun ráðstefnu um olíu á Drekasvæðinu. Ræðumenn voru sérfræðingar á ólíkum sviðum olíuiðnaðar frá Íslandi og Noregi.
Fyrstur talaði Þórarinn Sveinn Arnarson, verkefnastjóri olíuleitar hjá Orkustofnun. Þórarinn fjallaði um stöðu olíuleitar á Drekasvæðinu.
Næst fjallaði Thina Margrethe Saltvedt, sérfræðingur hjá Nordea Markets, og einn helsti sérfræðingur Norðurlandanna í þessum málaflokki, um hugsanleg áhrif á efnahagslíf ef olía finnst á Drekasvæðinu.
Að lokum fjallaði Per Mathis Konsrud, aðstoðarframkvæmdastjóri í fjármálaráðuneyti Noregs um reynslu Norðmanna af ráðstöfun þeirra verðmæta sem olíuiðnaðurinn í Noregi hefur leitt af sér þar í landi.
Ráðstefnan fór fram fyrir fullu húsi og mæltust erindi frummælenda afar vel fyrir.