03.02.2012
Vel sóttur kynningarfundur
Arion banki bauð viðskiptavinum sínum á opinn kynningarfund þann 1. febrúar í höfuðstöðvum bankans. Starfsmenn Eignastýringar Arion banka fóru yfir áhrif tímabundinnar lækkunar viðbótarlífeyrissparnaðar úr 4% í 2% á ráðstöfunartekjur launþega og kynntu úrval sparnaðarleiða innan bankans. Var fundurinn vel sóttur og nýttu margir fundarmenn sér ráðgjöf sérfræðinga eftir fundinn.