03.07.2012
Verdis hf. sameinast Arion banka hf.
Fjármálaeftirlitið veitti þann 29. júní sl. samþykki fyrir því að Verdis hf. sameinist Arion banka hf. Samruninn var samþykktur af stjórn Arion banka hf. þann 20. júní 2012 og af stjórn Verdis hf. þann 29. júní 2012. Samruninn tekur gildi frá og með 29. júní 2012. Réttindum og skyldum Verdis hf. telst reikningslega lokið þann 1. janúar 2012 en frá þeim degi tekur Arion banki hf. við öllum réttindum og skyldum vegna Verdis hf.