03.02.2009
Verklagsreglur um úrlausnir útlánavandamála
Stjórn Nýja Kaupþings banka hefur samþykkt verklagsreglur um úrlausnir útlánavandamála fyrirtækja. Í ljósi þess að bankinn tekur til starfa við óvenjulegar aðstæður, þar sem traust almennings til fjármálastofnana er í lágmarki og mörg heimili og fyrirtæki eiga við fjárhagserfiðleika að etja, leggur stjórn bankans þunga áherslu á að endurvinna það traust sem hefur glatast. Í því augnmiði hefur hún samþykkt áðurgreindar verklagsreglur sem er ætlað að tryggja gagnsæi í ákvarðanatöku bankans og hlutlæga afgreiðslu, þar sem áhersla er lögð á samræmd vinnubrögð gagnvart fyrirtækjum í tímabundnum erfiðleikum.
Með þessum viðmiðum er leitast við að takmarka tjón samfélagsins í töpuðum störfum og framleiðslu sem getur hlotist af fjárhagserfiðleikum lífvænlegra fyrirtækja ef ekki er rétt á málum haldið. Sjónarmiðin sem liggja til grundvallar verklagsreglunum eru auk almennra góðra venja í bankaviðskiptum, álit Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2008, yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands frá 2. desember 2008 og Lundúnaleiðin (e. London Approach) sem eru alþjóðlegar viðmiðunarreglur við úrlausn skuldavandamála.
Verklagsreglum þessum er fyrst og fremst ætlað að veita viðskiptavinum innsýn í hvernig bankinn lítur á og greinir úrlausnarmál sín, fremur en að afgreiðsla mismunandi mála verði öll felld vélrænt í sama mót. Eftir sem áður byggir bankastarfsemi fyrst og fremst á þjónustu hæfs starfsfólks með þekkingu og reynslu til að takast á við fjölbreytilegar aðstæður viðskiptavina.
Til að tryggja jafnræði á meðal viðskiptavina hefur stjórn Nýja Kaupþings banka ráðið Brynhildi Georgsdóttur í starf umboðsmann viðskiptavina. Umboðsmaður viðskiptavina starfar í umboði stjórnar og fylgist með að meðhöndlun mála sé í samræmi við skýrar verklagreglur og að sanngirni sé gætt við úrlausn þeirra. Umboðsmaður yfirfer verklagsreglur og vinnuferla bankans í þeim tilgangi að byggja upp traust á starfsemi hans. Umboðsmaður mun meðal annars yfirfara úrlausn útlánavandamála fyrirtækja og tryggja að viðskiptavinum sé ekki mismunað, afgreiðsla sé gegnsæ og gætt sé að samkeppnissjónarmiðum.
Nánari upplýsingar veitir:
Finnur Sveinbjörnsson sími 444-6000