14.08.2012
Vertu velkomin/n á atvinnulífssýninguna í Egilsstaðaskóla helgina 18.-19. ágúst
Atvinnulífssýningin „Okkar samfélag“ verður haldin í Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum um næstu helgi.
Arion banki verður með bás á sýningunni ásamt fjölda annarra en hátt í hundrað sýnendur munu fylla skólann. Þá verður opið kaffihús fyrir sýningargesti, í boði verða tónlistaratriði, dans, leikir o.fl.
Sýningin verður opin frá kl. 11-17 báða dagana og er aðgangur ókeypis.
Kíktu við á básnum okkar og kynntu þér þjónustu Arion banka á Austurlandi. Við tökum vel á móti þér.