18.04.2012

Vet­ur kvadd­ur og sumri fagn­að með fata­söfn­un til styrkt­ar Rauða kross Ís­lands

Starfsfólk Arion banka ákvað að kveðja vetur og fagna sumri með því að taka til í skápum og geymslum og gefa að minnsta kosti eina sumar- og eina vetrarflík í fatasöfnun Rauða krossins. Fatasöfnunin hófst í morgun og fljótt kom í ljós að fleiri en tvær gamlar flíkur leyndust í skápum margra starfsmanna sem nýttu flestir tækifærið og gáfu í söfnunina þegar þeir mættu til vinnu.

Fatagámar Rauða krossins standa fyrir utan höfuðstöðvar bankans í Borgartúni 19 en einnig safna starfsmenn útibúa bankans víðs vegar um landið saman notuðum fötum sem ætlunin er að gefa nýtt líf í söfnun fyrir Rauða krossinn. Stefnt er að því að afhenda Rauða krossinum afrakstur söfnunarinnar í lok næstu viku þegar sendingar útibúa af landsbyggðinni hafa borist.

Fatasöfnun Rauða krossins er orðin eitt mikilvægasta fjáröflunarverkefnið fyrir Hjálparsjóð Rauða kross Íslands. Afrakstur fatasöfnunar ársins 2010 var 60 milljónir króna sem greiddar voru í Hjálparsjóð en hann er einkum notaður til alþjóðlegs hjálparstarfs. Þá úthlutaði Rauði krossinn einnig fatnaði til um 2.000 einstaklinga hér á landi árið 2010 þannig að hér er um að ræða afskaplega gott og þarft málefni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira