12.06.2013
Við hvetjum alla til að senda Óla kveðju
Þann 16. júní næstkomandi lýkur Ólafur Stefánsson handboltakappi landsliðsferlinum í sínum síðasta landsleik sem er gegn Rúmeníu. Fannst okkur í Arion banka við hæfi að þakka „stráknum okkar“ fyrir hans framlag og allar gleðistundirnar en Ólafur Stefánsson er mesti afreksmaður í handknattleik sem Íslendingar hafa eignast.
Vefsíðan www.takkoli.is var því sett í loftið til heiðurs honum en þar geta allir sem vilja þakkað Óla fyrir, deilt á Facebook, tvítað eða sent mynd á Instagram. Nú þegar hafa hátt í 16.000 manns þakkað Óla fyrir á vefsíðunni og fjölmargir sent honum hlýjar kveðjur enda er hér um að ræða einn ástsælasta íþróttamann okkar Íslendinga.
Við erum stolt af því að vera einn af aðalstyrktaraðilum íslenska landsliðsins í handbolta og við erum svo sannarlega stolt af Ólafi Stefánssyni.