09.07.2010

Viðskipta­vinir fá af­slátt hjá yf­ir 300 fyrir­tækj­um

Einkaklúbbskort verður sent á næstunni endurgjaldslaust til allra vildarviðskiptavina Arion banka og þeirra sem eru í Námsmannaþjónustu og hafa Kortið. Einkaklúbbskortið veitir afslátt hjá yfir 300 verslunum- og þjónustuaðilum en algengt er að kortið veiti tveir fyrir einn afslátt á veitingastöðum. Aðgangurinn gildir út maí 2012. Viðskiptavinir geta enn fremur skráð sig á www.arionbanki.is og fengið send til sín sértilboð frá Einkaklúbbnum.

Einkaklúbburinn er einn öflugasti afslátta- og fríðindaklúbbur landsins og var stofnaður árið 1992.
Með þessari nýjung bætist enn við þá þjónustu sem vildarviðskiptavinir Arion banka njóta. Þeir fá t.d. nú þegar afslætti hjá Okkar líf, VÍS og Öryggismiðstöðinni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira