23.03.2012
Viðskiptavinum býðst að greiða 5.000 krónur af hverri milljón
Viðskiptavinum Arion banka með íbúðalán hjá bankanum sem hafa verið endurreiknuð býðst nú að greiða 5.000 krónur af hverri milljón. Gildir þetta einnig um þá greiðsluseðla sem þegar hafa verið sendir út og birtir í Netbanka Arion banka.
Töluverð óvissa er enn uppi varðandi það hve víðtækt fordæmisgildi dóms Hæstaréttar frá því í febrúar er og mun taka tíma að eyða þeirri óvissu. Þangað til gefst viðskipavinum Arion banka kostur á að breyta mánaðarlegum afborgunum sínum með þessum hætti.
Viðskiptavinir sem kjósa að greiða 5.000 krónur af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls geta sótt um breytingu á mánaðarlegum afborgunum endurreiknaðra íbúðalána í útibúum bankans og taka breytingarnar gildi frá og með næsta gjalddaga.
Það er von Arion banka að þetta bráðabirgðaúrræði nýtist viðskiptavinum þar til úr allri óvissu verður skorið, en vonandi verður það sem fyrst.