14.03.2014
Vildarkorthafar Arion banka safna Vildarpunktum af allri innlendri verslun
Nýlega gerði Arion banki samning við Icelandair um áframhaldandi samstarf vegna útgáfu vildarkorta, en með notkun vildarkorta safna korthafar Vildarpunktum Icelandair.
Samningurinn felur í sér nokkrar breytingar fyrir korthafa. Meðal annars munu vildarkorthafar framvegis safna Vildarpunktum Icelandair af allri innlendri verslun í stað aðeins hluta áður. Er þetta gert til einföldunar fyrir korhafa og er markmiðið bætt upplifun viðskiptavina Arion banka við notkun vildarkortanna og söfnun Vildarpunkta Icelandair.
Áður höfðu Arion banki og Icelandair gert með sér samkomulag vegna MasterCard World Elite kortsins. Handhafar þess safna Vildarpunktum af allri innlendri og erlendri verslun og felur kortið einnig í sér umfangsmikil ferðafríðindi, meðal annars aðgang að Saga Lounge í Keflavík auk vinamiða að uppfylltum skilyrðum.
Breytt fyrirkomulag ásamt spennandi nýjungum verður kynnt vildarkorthöfum Arion banka nánar á næstunni.
Í tilefni af samningum Arion banka og Icelandair mun Icelandair bjóða vildarkorthöfum Arion banka glæsilegt Vildarpunktatilboð til spennandi borga í Evrópu og Bandaríkjunum. Þar að auki mun einn heppinn vildarkorthafi Arion banka vinna sér inn 500.000 Vildarpunkta með því einu að nota kortið sitt á einhverjum sölustað í mars mánuði. Allar færslur vildarkorthafa fara í pott sem dregið verður úr í byrjun apríl.
Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun samningsins fyrr í dag.