10.04.2014

Vild­ar­kort­hafi Arion banka vann 500.000 Vild­arpunkta

Frá og með 22. maí næstkomandi mun fyrirkomulag útreiknings Vildarpunkta Icelandair á vildarkortum Arion banka breytast. Af því tilefni var efnt til leiks þar sem nöfn vildarkorthafa sem notuðu kort á einhverjum sölustað í mars voru sett í pott.

Í byrjun apríl var einn heppinn viðskiptavinur dreginn úr pottinum. Það var Guðný Hallsdóttir á Stóra-Hamri á Akureyri sem datt í lukkupottinn og fékk fyrir vikið 500.000 Vildarpunkta Icelandair og óskum við henni til hamingju með vinninginn.

Breyting sem mun eiga sér stað þann 22. maí felst fyrst og fremst í því að framvegis munu korthafar vildarkorta Arion banka ávinna sér Vildarpunkta vegna viðskipta hjá öllum innlendum söluaðilum í stað aðeins hluta þeirra áður. Þessi breyting er því til hagsbóta fyrir korthafa sem geta með þessu móti safnað sér hraðar fyrir því sem greiða má með Vildarpunktum Icelandair.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira