03.12.2010
Viljayfirlýsingin merkur áfangi
Arion banki telur samkomulag ríkisstjórnarinnar, lífeyrissjóða, Íbúðalánasjóðs og fjármálafyrirtækja um margvíslegar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna afar mikilvægt. Nú hafa allir lánveitendur á íbúðalánamarkaði auk stjórnvalda komið sér saman um sameiginlegar lausnir og verklag.
Bankinn hefur um nokkurt skeið boðið upp á lausnir fyrir einstaklinga og heimili í greiðsluvanda og hafa um fjögur þúsund viðskiptavinir þegar nýtt sér lausnir bankans. Það hefur leitt til þess að bankinn hefur afskrifað 12,8 milljarða króna af fasteignaveðlánum heimilanna. Arion banki hefur einnig komið á fót sérhæfðri ráðgjafarþjónustu þar sem markmiðið er að koma sem best til móts við þarfir viðskiptavina í greiðsluvanda. Markmiðið er einnig að allir sem eiga í greiðsluvanda hafi fengið úrlausn sinna mála innan nokkurra mánaða.
Bankinn hvetur viðskiptavini sína til að hafa samband við sitt útibú til að fara yfir hvernig aðgerðirnar nýtast þeim.
Helstu efnisatriði samkomulagsins eru eftirfarandi:
Aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila
Lántakendum í greiðsluvanda með yfirveðsettar eignir býðst að fá eftirstöðvar skulda færðar niður að 110% af verðmæti fasteignar. Niðurfærslu skulda eru settar takmarkanir. Annars vegar er um að ræða niðurfærslu að hámarki 4 m.kr. hjá einstaklingi og 7 m.kr. hjá hjónum/sambýlisfólki og einstæðum foreldrum, sem ætlunin er að afgreiða megi hratt. Mun ítarlegra mat á eignum og greiðslugetu þarf að koma til ef um meiri niðurfærslu er að ræða, að hámarki 15 m.kr. hjá einstaklingi og 30 m.kr. kr. hjá hjónum/sambýlisfólki og einstæðum foreldrum.
Sértæk skuldaaðlögun
Með breytingum á sértækri skuldaaðlögun mun það úrræði bjóðast fleiri heimilum og bætt samstarf við úrvinnslu mun auka skilvirkni þess. Lántakendum í miklum greiðsluvanda býðst að færa lán sín niður í allt að 70% af verðmæti íbúðarhúsnæðis til samræmis við greiðslugetu. Allt að 30% af virði eignar er þá sett á vaxta- og afborgunarlaust biðlán í 3 ár og skuldir umfram 100% felldar niður.
Auknar vaxtabætur
Rúmlega 2 milljörðum króna verður varið til að viðhalda sérstakri hækkun vaxtabóta sem verið hefur við lýði á árunum 2009 og 2010. Jafnframt verður gerð breyting á almennum vaxtabótum þannig að þær komi í auknum mæli til móts við heimili með þunga skuldabyrði og lágar og miðlungstekjur.
Ný tímabundin vaxtaniðurgreiðsla
Nýtt tímabundið úrræði verður mótað til að greiða niður vaxtakostnað vegna íbúðahúsnæðis. Niðurgreiðslan er almenn, óháð tekjum, en fellur niður þegar hrein eign skuldara er umfram tiltekin há mörk. Reikna má með að greiðslubyrði heimila muni lækka vegna þessa um allt að 200-300 þúsund kr. á ári. Kostnaðurinn við þetta nýja úrræði verður allt að 6 milljarðar króna á ári og verður hún í gildi árin 2011 og 2012. Ríkisstjórnin mun í samstarfi við aðila samkomulagsins leita leiða til að fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóðir fjármagni þessi útgjöld.
Sérstakt átak til að ná til heimila í vanskilum
Lánveitendur munu kappkosta að ná til allra heimila sem eru í vanskilum og bjóða þeim viðhlítandi lausnir fyrir 1. maí 2011. Sérstökum samstarfsvettvangi verður komið upp til að flýta afgreiðslu mála og allar aðgerðir verða miðaðar við komast megi hjá uppboðum eigna
Félagslegar lausnir í húsnæðismálum
Lánveitendur munu vinna með ríki, sveitarfélögum og félagasamtökum við að koma á fót fjölbreyttum húsnæðislausnum og lífeyrissjóðir munu greiða götu félagslegra úrræða í húsnæðismálum með kaupum á sérstökum flokki íbúðabréfa á lægstu mögulegum vöxtum. Ríkisstjórnin mun ekki lækka framlög til húsaleigubóta á næsta ári.