02.09.2011
Vinningshafar í Meniga leik Arion banka
Viðskiptavinir Arion banka sem skráðu sig í Meniga, heimilisbókhald bankans, fyrir 1. september áttu möguleika á að vinna Apple iPad.
Búið er að draga út vinningshafa og voru þau heppnu: Kristbjörg Gunný Jónsdóttir, Kjartan Jóhannsson og Heiðar Ingi Heiðarsson.
Óskum við þeim innilega til hamingju og vonumst til að iPad-arnir eigi eftir að koma sér vel.
Ef þú ert ekki þegar skráður í Meniga hvetjum við þig til að kynna þér kosti heimilisbókhaldsins nánar hér www.arionbanki.is/meniga.
Aðgangur að heimilisbókhaldinu er viðskiptavinum bankans að kostnaðarlausu.
Á meðfylgjandi myndum má sjá vinningshafana veita iPad-unum móttöku.