16.02.2011

Vin­sæl nám­skeið byggð á sjón­varps­þátt­unum Ferð til fjár

Góð aðsókn sýnir þörfina á aukinni fræðslu um fjármál.

Breki Karlsson vakti mikla athygli með sjónvarpsþáttunum Ferð til fjár sem sýndir voru á RÚV nú í janúar. Arion banki og Stofnun um fjármálalæsi standa nú fyrir röð námskeiða sem byggð eru á þáttunum og samnefndri bók Breka Karlssonar, forstöðumanns stofnunarinnar.

Á námskeiðinu fer Breki betur í saumana á fjármálum einstaklinga og fjallar um peninga, sparnað og eyðslu með áhugaverðum hætti – á mannamáli. Að sögn Breka finnur hann fyrir vitundarvakningu meðal almennings, ekki síst meðal ungs fólks, um nauðsyn þess að ná betri tökum á þessum mikilvægu þáttum daglegs lífs og að geta skipulagt fjármál sín betur til framtíðar.

Góð aðsókn hefur verið að þeim námskeiðum sem þegar hafa verið haldin og hefur því verið ákveðið að bæta við námskeiði á höfuðborgarsvæðinu. Námskeiðin Ferð til fjár eru opin öllum sem áhugasamir eru um fjármál einstaklinga og heimila.

Námskeiðin verða haldin á eftirfarandi stöðum:

  • Miðvikudagur 16. febrúar kl. 17:30 - Borgartúni 19, Reykjavík - FULLBÓKAÐ

  • Miðvikudagur 23. febrúar kl 13:00 - Bifröst (Hriflu), Borgarfirði

  • Miðvikudagur 9. mars klukkan 17:30 – Borgartúni 19, Reykjavík

Táknmálstúlkur verður á námskeiðunum í Borgartúni.

Stofnun um fjármálalæsi beitir sér fyrir bættu fjármálalæsi Íslendinga með fjölbreyttri starfsemi s.s. fræðslu og kennslu um fjármál í skólum landsins og gerð fræðsluefnis í rituðu máli. Arion banki er aðalbakhjarl stofnunarinnar og Breki Karlsson, forstöðumaður hennar, fer fyrir Uglunni, fræðsluátaki Arion banka ásamt sérfræðingum bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira