10.04.2013

VÍS – Al­mennt hluta­fjárút­boð 12 - 16 apríl 2013

Áskriftarform - Tilboðsbók A

Lýsing VÍS

Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingarbankasviðs Arion banka hefur umsjón með almennu útboði á 60% hlut í Vátryggingafélagi Íslands hf., en seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 70%.

Fjárfestum eru boðnar þrjár áskriftarleiðir, eða svokallaðar tilboðsbækur. Seljandi óskar eftir áskriftum á verðbilinu 6,75–7,95 krónur á hlut í tilboðsbækur A og B, en allir hlutir sem seldir verða í þeim bókum verða á sama verði. Framangreint verðbil samsvarar því að heildarandvirði hlutafjár í VÍS sé 16,9–19,9 milljarðar króna. Seljandi óskar eftir áskriftum í tilboðsbók C á lágmarksverði 6,75 krónur á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í þessari tilboðsbók útboðsins verður úthlutað á því gengi sem viðkomandi fjárfestir býður.

Stefnt er að því að útboðið marki grunninn að dreifðu eignarhaldi á VÍS og geri félaginu kleift að uppfylla lágmarksskilyrði NASDAQ OMX Iceland um dreifingu hlutafjár hjá félögum sem fá hlutabréf tekin til viðskipta í Kauphöllinni. Markmið seljandans er jafnframt að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína.

TILBOÐSBÓK A 10% hluta boðnir fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði 100.000–50.000.000 kr. Fjárfestar skila áskrift rafrænt á vef Arion banka, www.arionbanki.is. Til þess notar fjárfestir notandanafn sitt og lykilorð að netbanka Arion banka, eða kennitölu sína og lykilorð sem hann pantar á áskriftarvefnum og fær sent um hæl sem rafrænt skjal í netbanka sinn hjá hvaða íslenska viðskiptabanka sem er.

TILBOÐSBÓK B 30,1% hluta boðnir fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði meira en 50 milljónir króna. Fjárfestar eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf eða Hlutabréfamiðlun Fjárfestingarbankasviðs Arion banka og skila áskrift rafrænt, en til þess notar fjárfestir kennitölu sína og lykilorð sem hann fær sent í netbanka sinn.

TILBOÐSBÓK C Fjárfestum boðnir fjórir 2,475% eignarhlutir, samtals 9,9%. Fjárfestar eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf eða Hlutabréfamiðlun Fjárfestingarbankasviðs Arion banka og skila áskrift rafrænt, en til þess notar fjárfestir kennitölu sína og lykilorð sem hann fær sent í netbanka sinn.

Auk þessarar grunnskiptingar verður 10–20% hluta ráðstafað í eina eða fleiri af tilboðsbókunum eftir því sem verð og magn eftirspurnar gefur tilefni til.

ÚTHLUTUN
Komi til þess að eftirspurn í útboðinu verði meiri en sem nemur stærð útboðsins, þá verða áskriftir í tilboðsbók A skertar um allt að 75% (utan áskriftir 100–500 þús.kr. og áskriftir starfsmanna VÍS að hámarki 3 milljónir kr.) og þurfi að koma til frekari niðurskurðar verða hæstu áskriftir lækkaðar frekar. Úthlutun til fjárfesta í tilboðsbókum B og C verður samkvæmt
einhliða ákvörðun seljanda, sem taka mun mið af markmiðum útboðsins.

ÁSKRIFTARTÍMABIL OG ÞÁTTTAKA
Áskriftartímabil stendur frá föstudeginum 12. apríl klukkan 10:00 til þriðjudagsins 16. apríl klukkan 16:00.

Þátttaka í útboðinu er heimil aðilum með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir og með þeim takmörkunum sem kunna að leiða af lögum. Það þýðir m.a. að erlendir aðilar, skv. skilgreiningu 1. mgr. 1. gr. laga um gjaldeyrismál nr. 87/1992, skulu sýna fram á að þeim sé heimilt að fjárfesta í verðbréfunum sem boðin eru í útboðinu, sbr. 13. gr. m. og 13. gr. b. í gjaldeyrislögunum.

Eindagi kaupverðs er áætlaður 23. apríl 2013. Stefnt er að því að 24. apríl 2013 verði fyrsti dagur viðskipta með hluti VÍS á Aðalmarkaði Kauphallarinnar.

Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um VÍS og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu VÍS dagsettri 27. mars 2013 sem gefin er út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna má nálgast rafrænt á vis.is/fjarfestar og arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum VÍS að Ármúla 3 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík.

Nánari upplýsingar um útboðið má nálgast á arionbanki.is, svo og með tölvupósti á visipo2013@arionbanki.is eða í síma 444 7000 milli kl. 9:00 og 20:00 meðan áskriftartímabilið stendur yfir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira