27.03.2013

VÍS - Birt­ing lýsingar

Útgefandi: Vátryggingafélag Íslands hf., kennitala 690689-2009, Ármúla 3, 108 Reykjavík

Vátryggingafélag Íslands hf. („VÍS“) birti lýsingu þann 27. mars 2013, í tengslum við almennt útboð á hlutum félagsins og umsókn stjórnar félagsins um að hlutir í VÍS verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Lýsingin er dagsett 27. mars 2013, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins, www.vis.is/fjarfestar.

Lýsinguna má nálgast rafrænt á vefsíðu félagsins næstu 12 mánuði. Lýsinguna má einnig nálgast á vefsíðu umsjónaraðila, www.arionbanki.is. Frá 3. apríl 2013 má jafnframt nálgast innbundin eintök hjá VÍS í Ármúla 3, 108 Reykjavík og hjá Arion banka hf. í Borgartúni 19, 105 Reykjavík.

Heildarfjöldi útgefinna hluta í Vátryggingafélagi Íslands hf. nemur 2.502.757.040, en þar af á félagið 0,01% eigin hluta. Allir útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og jafn réttháir. Hlutir félagsins eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Auðkenni hlutanna hjá Verðbréfaskráningu er VIS og ISIN númer þeirra er IS0000007078. Stjórn útgefanda hefur óskað eftir því að VIS verði auðkenni hlutabréfanna í kerfum NASDAQ OMX Iceland hf.

Almennt útboð 12.-16. apríl 2013

Klakki ehf. hyggst selja þegar útgefna hluti í VÍS með almennu útboði sem Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með. Stærð útboðsins nemur 60% af útgefnum hlutum, nánar tiltekið 1.501.654.224 hlutum (sem heimilt er að stækka í allt að 70% eða 1.751.929.928 hluti). Á vefsíðu umsjónaraðila, www.arionbanki.is, verður tekið við áskriftum frá og með föstudeginum 12. apríl 2013 klukkan 10.00 til og með þriðjudeginum 16. apríl 2013 klukkan 16.00. Lágmarksáskrift er að andvirði 100 þúsund krónur. Fjárfestum er boðið uppá þrjár áskriftarleiðir, eða svo kallaðar tilboðsbækur. Ákvörðun á verði þeirra hluta sem seldir verða í útboðinu verður ekki með sama hætti í öllum tilboðsbókum útboðsins. Í tilboðsbókum A og B óskar seljandi eftir áskriftum á verðbilinu 6,75 – 7,95 krónur á hlut og mun eftir lok áskriftartímabils ákvarða eitt endanlegt útboðsgengi til allra kaupenda sem þátt tóku í tilboðsbókum A og B, en það mun verða á framangreindu verðbili. Í tilboðsbók C þurfa fjárfestar að tilgreina kaupverð í 2,475% eignarhlut og er tekið við áskriftum sem eru að lágmarki á verðinu 6,75 krónur á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í tilboðsbók C verður úthlutað á því gengi sem viðkomandi fjárfestir býður. Í tilboðsbók A er gert ráð fyrir að bjóða samtals 10% af útgefnum hlutum, í tilboðsbók B 30,1% og í tilboðsbók C 9,9%, auk þess sem seljandi mun ráðstafa 10% (stækkanlegt í allt að 20%) í eina eða fleiri af tilboðsbókunum eftir því sem verð og/eða magn eftirspurnar gefur tilefni til að hans mati.

Markmið Klakka ehf. með útboðinu er að selja hlutabréfin á ásættanlegu verði, svo og að útboðið geri Vátryggingafélagi Íslands hf. kleift að uppfylla lágmarksskilyrði um dreifingu hlutafjár sem NASDAQ OMX Iceland hf. gerir til félaga sem fá hlutabréf tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Stefnt er að því að útboðið marki þannig grunninn að dreifðu eignarhaldi á VÍS og er þá bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu. Stjórn seljanda mun falla frá útboðinu ef ekki fæst áskrift í útboðinu fyrir að lágmarki 60% af útgefnum hlutum í VÍS eða ef NASDAQ OMX Iceland hf. samþykkir ekki fyrir lok maí 2013 umsókn um að hlutir í VÍS verði teknir til viðskipta. Stjórn seljanda áskilur sér jafnframt rétt til að falla frá útboðinu hvenær sem er fram að tilkynningu NASDAQ OMX Iceland hf. um að hlutir í VÍS verði teknir til viðskipta ef upp koma einhverjir þeir áhrifaþættir sem stjórn seljandans telur gefa tilefni til þess, svo sem sérlega neikvæð þróun á efnahagsumhverfi og/eða verðbréfamarkaði á Íslandi.

Niðurstöður útboðs verða birtar almenningi opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu í síðasta lagi miðvikudaginn 17. apríl 2013. Útboðið er með fyrirvara um samþykki á fyrirliggjandi umsókn um að hlutir í Vátryggingafélagi Íslands hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Slíkt samþykki er tilkynnt opinberlega af NASDAQ OMX Iceland hf. og sömuleiðis þá hvenær fyrsti mögulegi viðskiptadagur verði með hlutina á hinum skipulega verðbréfamarkaði, en NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir slíka dagsetningu með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara.

Nánari upplýsingar

Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með almenna útboðinu og því ferli að fá hluti félagsins tekna til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Nánari upplýsingar um félagið og skilmála almenna útboðsins má finna í lýsingu VÍS

Lýsing VÍS

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira