23.01.2013

VÍS í sölu­ferli

Klakki ehf., eigandi Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS), hefur hafið undirbúning að sölu á VÍS og er stefnt að því að nýir eigendur geti komið að félaginu nú á vormánuðum. Bæði er til skoðunar að selja félagið í heilu lagi eða skrá það í kauphöll og selja í dreifða eigu fjárfesta, þannig að endanlegt fyrirkomulag söluferlis liggur ekki fyrir. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með söluferlinu og undirbúningi að mögulegri kauphallarskráningu. Verði hlutabréf félagsins tekin til viðskipta í kauphöll, þá verður almenningi og stærri fjárfestum boðið að kaupa hlut í félaginu í aðdraganda þess.

VÍS er sterkt og öflugt félag og áhugaverður fjárfestingakostur, enda um að ræða stærsta vátryggingafélag landsins með ríflega þriðjungs markaðshlutdeild. Fyrirtækið stundar almenna vátryggingastarfsemi og býður alhliða tryggingalausnir fyrir einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir, en hluti af þjónustuframboðinu er í höndum Lífís sem er dótturfélag VÍS.

Klakki er eignarhaldsfélag sem er að mestu í eigu fjármálastofnana og lífeyrissjóða. Klakki stýrir eignasafni sínu með virkum hætti og hefur að markmiði að efla starfsemi dótturfélaga sinna í þeim tilgangi að hámarka virði þeirra í þágu hluthafa sinna.

Nánari upplýsingar veitir fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira