30.05.2012

Vista sam­ein­ast Lífeyris­auka

Vista mun sameinast séreignarsjóðnum Lífeyrisauka þann 1. júní næstkomandi. Sameinaður sjóður mun starfa undir nafni Lífeyrisauka og verður stærsti og fjölmennasti sjóður á Íslandi sem eingöngu tekur við viðbótarlífeyrissparnaði. Stærð sameinaðs sjóðs verður um 49 milljarðar og fjöldi sjóðfélaga um 63 þúsund. Báðir sjóðirnir eru í rekstri hjá Arion banka og mun engin breyting verða þar á.

Inneign rétthafa í fjárfestingarleiðum Vista verður flutt í samsvarandi fjárfestingarleiðir í Lífeyrisauka m.v. 1. júní 2012 og verður iðgjöldum einnig ráðstafað í samsvarandi leið. Sjóðfélagar í Vista munu halda þeirri sérstöðu sem Vista bauð upp á, t.a.m. með greiðslu bankans í lokabónus.  

Sameining sjóðanna er liður í því að einfalda vöruúrval Arion banka hvað varðar lífeyrisafurðir, til hagræðingar bæði fyrir sjóðfélaga og bankann.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira