11.05.2011

Vor­fund­ur í Arion banka um efna­hags­horf­ur í höft­um

Þriðjudaginn 10. maí var haldinn hádegisfundur í Arion banka á vegum Greiningardeildar Arion banka um efnahagshorfur í höftum.

Fyrirlesarar voru Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður Greiningardeildar Arion banka, Þorbjörn Atli Sveinsson, sérfræðingur í Greiningardeild Arion banka, Marínó Örn Tryggvason, forstöðumaður Eignastýringar fagfjárfesta Arion banka og gestafyrirlesari var Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur.

Eftirfarandi er stutt samantekt af erindum fyrirlesaranna:

Ásdís Kristjánsdóttir - Efnahagshorfur að vori
Vísbendingar eru þess efnis að efnahagsbatinn sé hafinn. Batinn verður hins vegar veikur og afar brothættur, þannig geta breyttar forsendur hæglega breytt hagvaxtarskeiði í samdrátt á ný. Samhliða auknum umsvifum í hagkerfinu mun eftirspurn eftir vinnuafli aukast á ný. Hins vegar er alveg ljóst að það er verið að tefla nokkuð djarft með hinum nýju kjarasamningum, en innihald þeirra fela í sér alltof miklar launahækkanir ofan í þann efnahagsslaka sem framundan er. Að mati Ásdísar hefur þó ýmislegt jákvætt áunnist frá hruni, það ríkir stöðugleiki í hagkerfinu, vextir og verðbólga hafa gengið niður og ríkisfjármálin tekin föstum tökum. Það má í raun segja að strax eftir hrun leit Ísland e.t.v. verst út meðal annarra Evrópuríkja en ef allar áætlanir ganga eftir er útlit fyrir að Ísland sé í ágætismálum – enda má segja að önnur ríki séu í dag að kljást við mun erfiðari mál. Ljóst er hins vegar að það eru mörg erfið verkefni framundan en það skiptir máli að Íslendingar spili rétt úr þeim spilum sem eru á hendi.

Þorbjörn Atli Sveinsson - Skuldir og gjaldeyrissköpun þjóðarinnar
Erlend skuldastaða þjóðarinnar (án Actavis) er samkvæmt mati greiningardeildar neikvæð um -53% af landsframleiðslu, en þá hefur einnig verið tekið tillit til endanlegs uppgjörs þrotabúa gömlu bankanna. Þetta mat er töluvert verra en kom fram í skýrslunni „Hvað skuldar þjóðin?“ þar sem nettó skuldastaðan var áætluð um -24% af landsframleiðslu. Munurinn skýrist meðal annars af endurmati á erlendum eignum Íslendinga (bein fjárfesting erlendis) í hagtölum Seðlabankans.

Spá greiningardeildar um viðskiptaafgang (án Actavis og með reiknuðu uppgjöri skilanefnda) er á bilinu 5,5-8,1% af VLF á næstu þremur árum. Þessi tala endurspeglar þó ekki raunverulega gjaldeyrissköpun, þ.e. nettó innstreymi erlends gjaldeyris inn á gjaldeyrismarkað. Mat greiningardeildar á væntanlegu innstreymi gjaldeyris bendir til þess að viðskiptajöfnuður ofmeti þessa stærð.

Útlit er fyrir að endurgreiðslur af erlendum lánum verði þungar á næstu árum og endurfjármögnun er enn ekki í augýn. Ef sú staða breytist ekki fljótt mun safnast upp mikil uppsöfnuð þörf eftir gjaldeyri frá og með árinu 2013. Þessari þörf verður að öðru óbreyttu ekki mætt með öðru en forða Seðlabankans eða veikingu krónunnar. Hins vegar er vandinn sá að forði Seðlabankans er allur skuldsettur og stærsti hluti hans er til skamms tíma. Svigrúm Seðlabankans til gjaldeyriskaupa (forðasöfnunar) í framtíðinni er því að öllum líkindum afar takmarkað án veikari krónu. Veiking krónunnar blasir við án bætts aðgangs að erlendum lánsfjármörkuðum en þó má taka það fram að Seðlabankinn hefur tök á gengi krónunnar til 2013.

Í nýlegri skýrslu Seðlabankans um áætlun um afnám hafta var lagt til að núverandi lagaheimild um gjaldeyrishöftin yrði framlengd um 4 ár. Þar kom einnig fram að meiriháttar skref í afnámi hafta verði vart tekin fyrr en ríkissjóður hefur sýnt fram á getu til endurfjármögnunnar erlendra lána. Vandinn við afnám hafta er tvíþættur. Í fyrsta lagi liggur fyrir að krónueignir erlendra aðila nema um 400 milljörðum króna. Þegar skipting eigna þrotabúa gömlu bankanna hefur farið fram munu erlendir aðilar fá í sinn hlut innlendar eignir að verðmæti 500-550 milljörðum króna að mati greiningardeildar. Samtals er því krónustaða erlendra aðila með einum eða öðrum hætti í kringum 900 milljarðar króna. Greiningardeild metur sem svo að undirliggjandi gjaldeyrisflæði krónunnar, skortur á raunverulegum gjaldeyrisforða og takmarkaður vilji Íslendinga til að selja erlendar eignir fyrir krónur muni geri það að verkum að afar erfitt verði að afnema gjaldeyrishöftin á næstu árum. Verulegt innflæði gjaldeyris frá erlendum aðilum auk betra aðgengis landsins að erlendum lánsfjármörkuðum á ásættanlegum kjörum gæti þó breytt þessari stöðu.

Marinó Örn Tryggvason - Eignaverð í höftum
Eftirspurn eftir nýjum fjárfestingakostum verður gríðarlega mikil á næstu árum. Það skýrist m.a. af því að lífeyrissjóðir þurfa að fjárfesta fyrir 100-120 ma. á ári og hátt hlutfall sparnaðar er nú bundið í innlánum sem muni hugsanlega leita í nýjan farveg. Á undanförnum árum hefur lítið framboð verið af fjárfestingakostum og fjárfestar hafa einkum fjárfest í ríkisskuldabréfum og innlánum. Ólíklegt er að ríki og sveitarfélög muni þurfa (eða geti) að gefa út gríðarlega mikið af skuldabréfum til þess að mæta fyrirsjáanlegri eftirspurn. Marinó telur að líklegt sé að þessi munur á framboði og eftirspurn fjárfestingakosta geti gert það að verkum að langtímavextir lækki á næstu árum og eignaverð muni hækka mikið. Ef þetta gerist án mikils hagvaxtar er líklegt að verðbólgudraugurinn vakni á ný og verðbólga verði mikil. Í umhverfi hafta er mikilvægt að hagvöxtur verði nægur og leiði til nýrra fjárfestingartækifæra, því án hagvaxtar mun hækkandi eignaverði líklega fylgja verðbóga.

Heiðar Már Guðjónsson
Eftir misheppnaðar tilraunir seðlabanka um allan heim með gjaldmiðla síðustu 40 ár stendur heimurinn á ákveðnum krossgötum. Allt fram til ársins 1971 var heimurinn með einum eða öðrum hætti á gullfæti, en síðan Bretton Woods kerfið hrundi, með ákvörðun Nixon 1971, hefur peningaprentun seðlabanka valdið mikilli eignabólu langt umfram aukningu framleiðni hagkerfanna.
Það er ekki hægt að prenta hrávörur og því mun sókn aðila eftir þeim, frekar en fjáreignum, aukast. Á sama tíma fjölgar mannkyninu upp að 9 milljörðum á næstu 30 árum. Við þessar aðstæður er Ísland í einstakri stöðu.

Alþjóðasamfélagið hefur mikla þörf fyrir það sem við framleiðum, en á sama tíma er Ísland aftengt umheiminum í gegnum fjármagnshöft sem allt kæfa. Eina leiðin til alþjóðlegra lífskjara er að hafa greiðan aðgang að alþjóðlegum mörkuðum.

Það eru 6 atriði sem þarf að laga á næstu 6 mánuðum, til að íslenska hagkerfið taki við sér og vaxi um 5% á ári næsta áratug. Allt eru þetta atriði sem einfalt er að laga.

  1. Íslenska krónan, aflögð með upptöku nýrrar myntar

  2. Fjárlagahalla þarf að eyða því hann ryður öðrum fjárfestingum frá, með hækkun vaxta

  3. Samrekstur viðskipta- og fjárfestingarbanka, er ekki ákjósanlegur þar sem innistæðutrygging er fyrir hendi

  4. Norræn velferð 2010 en ekki 1970, Svíþjóð er það land sem vex hraðast í Evrópu í dag vegna þess að þeir eru að hverfa frá ónýtu skipulagi sem þeir bjuggu til á árunum 1970-1990

  5. Skilanefndir banka, þarf lagabreytingu til að afnema það vald sem skilanefndir fengu gefins en þær starfa án ábyrgðar ríkis, kröfuhafa eða eftirlitsstofnana

  6. Orkuframleiðsla sem ræðst af hagkvæmni en ekki atkvæðasmölun, enda skiptir öllu að selja á alþjóðlegum verðum, frekar en með afslætti heim í hérað

Þetta er einfalt val. Alla þessa 6 þætti er hægt að laga á innan við 6 mánuðum og strax í kjölfarið tæki hagvöxtur við sér með fjárfestingu og atvinnusköpun, sem myndi laga það mikla högg sem hagkerfið hefur tekið á sig á skömmum tíma.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira