10.09.2009
Yfirlýsing frá Nýja Kaupþingi
Vegna fjölmiðlaumfjöllunar undanfarna daga vill Nýja Kaupþing taka fram eftirfarandi:
Nýja Kaupþing hefur ekki veitt einstaklingum lán í erlendum gjaldmiðlum til húsnæðiskaupa. Nýja Kaupþing tók við hluta af lánasafni gamla Kaupþings samkvæmt ákvörðun stjórnvalda. Hluti þess eru húsnæðislán í erlendri mynt.
Hluti lána sem gömlu íslensku bankarnir veittu viðskiptavinum sínum til fasteignakaupa voru lán í erlendum myntum, ekki í íslenskum krónum. Þarna er reginmunur á, enda gerðu eftirlitsstofnanir ekki athugasemdir við lán í erlendum myntum.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, segir í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 38 frá árinu 2001, að ekki sé „heimilt að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við dagsgengi erlendra gjaldmiðla.“ Það er hins vegar löglegt að veita lán í erlendum gjaldmiðli. Slík lán bera erlenda vexti en skuldbindingar í íslenskum krónum bera íslenska vexti.
Nýja Kaupþing leggur mikla áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrræði fyrir viðskiptavini sína sem lent hafa í vandræðum vegna efnahagskreppunnar.