06.04.2009

Yfirlýsing frá Nýja Kaupþingi

Í ljósi umræðu í fjölmiðlum í dag vill Nýja Kaupþing árétta að í kjölfar þess að Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur SPRON fóru stjórnvöld þess á leit við Nýja Kaupþing að allar innstæður fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is færðust yfir til bankans.

Meginmarkmið stjórnvalda með þessu var að tryggja aðgengi fyrrum viðskiptavina SPRON að innstæðum sínum enda eru allar innstæður tryggðar samkvæmt yfirlýsingu ríkistjórnarinnar. Þessi yfirfærsla gekk vonum framar og hafa fyrrum viðskiptavinir SPRON getað stundað almenn bankaviðskipti allt frá því tilmælin bárust frá ríkistjórninni.Fjöldi starfsmanna Nýja Kaupþings hefur lagt nótt við dag til að yfirfærslan hefði sem minnsta röskun í för með sér fyrir fyrrum viðskiptavini SPRON. Þá hefur bankinn ráðið til sín um 20 fyrrum starfsmenn SPRON.

Innstæðurnar sem færðust yfir í bankann að beiðni yfirvalda voru í raun skuld SPRON við viðskiptavini sína og voru engir fjármunir færðir til Nýja Kaupþings við aðgerðina. Þessi skuld nemur um 83 milljörðum króna. Þar sem innstæður eru forgangskröfur eru allar eignir fyrrum SPRON að veði fyrir þeim skuldbindingum sem Nýja Kaupþing tók yfir.

Nýja Kaupþing taldi því nauðsynlegt strax frá byrjun að gengið yrði frá skuldabréfi vegna innstæðna áður en farið væri að huga að sölu eigna SPRON. Það er af og frá að bankinn vilji með þessu sjónarmiði koma í veg fyrir samkeppni á íslenskum fjármálamarkaði.

Það er meginmarkmið starfsfólks bankans að nýjum viðskiptavinum Nýja Kaupþings verði tryggður réttur til eðlilegra bankaviðskipta, til jafns við alla viðskiptavini bankans og þeir verði fyrir sem minnstum óþægindum vegna breyttra aðstæðna á íslenskum fjármálamarkaði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira