30.06.2009

Yfirlýsing frá Nýja Kaupþingi

Yfirlögfræðingur Nýja Kaupþings banka, Helgi Sigurðsson, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu frá og með deginum í dag, 30. júní 2009. Helgi segir ákvörðunina tekna í því skyni að skapa frið um bankann og enduruppbyggingu hans.

Töluvert hefur verið fjallað um aðkomu Helga Sigurðssonar að kaupréttarsamningum starfsmanna gamla Kaupþings. Nýja Kaupþing vill koma eftirfarandi á framfæri vegna þessa máls: Stjórn Nýja Kaupþings fór fram á lögfræðiálit frá tveimur utanaðkomandi lögfræðingum þeim, Viðari Má Matthíassyni lagaprófessor og Herði Felix Harðarsyni hrl., til að meta lögmæti ákvörðunar gamla Kaupþings. Samkvæmt álitum þeirra hefur stjórn Nýja Kaupþings ekki heimild til að rifta ákvörðun stjórnar gamla bankans. Stjórn Nýja Kaupþings ætlar hins vegar ekki að afskrifa lán til starfsmanna vegna hlutabréfakaupa á meðan kæra hluthafa vegna lánanna er til meðferðar hjá sérstökum saksóknara.

Helgi Sigurðsson hefur ekki tekið þátt í störfum núverandi stjórnar þegar starfsmannalán hafa verið rædd og sat ekki fundi þar sem ákvarðanir um þau voru teknar. Stjórn og starfsfólk Nýja Kaupþings þakkar Helga Sigurðssyni vel unnin störf.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira